25.04.2026 21:43
Áhugamál
Daginn daginn.
Er leiðinlega sjaldan hérna að tjá mig, ekki það að ég hafi áhyggjur af því að alltof margir séu að lesa hvort eð er :)
Hins vegar er ég aðeins að uppa áhugamálin, enn og aftur eitthvað myndatengt, en á öðru sviði.
Lét eftir mér að eignast Insta360 videovél, eitthvað sem verið er, eða var allavega verið að nota t.d. við auglýsingar, á Instagram og fleiri stöðum þar sem "áhrifavaldar" eru :)
Ekki að ég sé að fara þá leiðina, nei ekki svo alvarlegt.
En með þessari vél, er hægt að taka upp í háskerpu, video, hljóð og jú, kyrrmyndir einnig. En það sem vakti áhuga minn og ástæða þess að ég fékk mér svona vél, er hvernig hægt er að höndla myndefnið.
Til dæmis kúlumyndir, sem koma afar skemmtilega út og svo interactive video, þar sem hægt er að snúa myndskránni á alla kanta, heil kúla innanvert, þannig að unnt er að skoða allt umhverfið í einni upptöku.
Eins og er þá er þessi möguleiki á Youtube, ef þar er opnað í síma, þá er hægt að snúa, velta símanum til að breyta sjónarhorninu. Og eins að skrolla til hliðar, upp, niður og útum allt með fingri.
Svona sem demo, þá er hérna kúlumynd.
![]() |
Er svona einhvernveginn allt öðruvísi en maður á að venjast. Þessi mynd er skjáskot úr video, kúluvideo sem ég tók og var að prófa/æfa mig með.
https://www.youtube.com/watch?v=wtiLRkOviHI
Endilega prófa að skoða þetta :)
Og svo er hérna hlekkur á interactive video á Youtube líka.
https://www.youtube.com/watch?v=uvWfp_zHnpc
Að sinni.

